Drengurinn sem hætti að gráta <br><small><i> Ninni Schulman </i></small></p>

Drengurinn sem hætti að gráta
Ninni Schulman

4.799 kr
4.799 kr
VSK er innifalinn. Heimsendingarkostnaður er innifalinn í verði ef verslað er fyrir 5.000,- eða meira. Annars er það 1.500,-

Á hlýju ágústkvöldi í Hagfors brennur einbýlishús til grunna. Rúmlega fertug kona lætur lífið. Í fyrstu er talið að eldingu hafi lostið í húsið en brátt kemur í ljós að um íkveikju var að ræða. Nokkrum dögum síðar kviknar í húsinu við hliðina. Og síðan í enn einu.

Ótti grípur um sig meðal íbúanna í þessum litla bæ í Värmlandi. Hvar brennur næst? Lögreglan er ráðþrota. Blaðakonan Magdalena Hansson fer á stúfana. Áður en varir er hún komin á kaf í æsilega og stórhættulega leit að sökudólgnum.

Elín Guðmundsdóttir íslenskaði.

Drengurinn sem hætti að gráta er sjálfstæð bók í hinni margrómuðu Hagfors-seríu eftir sænsku glæpasagnadrottninguna Ninni Schulman um blaðakonuna Magdalenu Hansson. Fyrri bækurnar í seríunni eru Stúlkan með snjóinn í hárinu, Leyndarmálið okkar, Velkomin heim og Þegar allar klukkur stöðvast, sem allar hafa fengið frábærar viðtökur íslenskra lesenda.

„Í hæsta gæðaflokki glæpasagna.“ – Skånska Dagbladet

♥︎♥︎♥︎♥︎♥︎ – Femina

„Einn okkar fremsti glæpasagnahöfundur og samfélagsrýnir."
Kristianstadsbladet

Kilja – 398 bls.

Útgáfuár: 2026