MORÐIN Í ÅRE
Það er vetrarleyfistími í Åre og bærinn iðar af mannlífi. Dag einn finnst illa útleikið lík fyrir utan bæinn. Fórnarlambið, fullorðinn karlmaður sem þekktur var á árum áður sem mikill skíðakappi, virðist ekki eiga sér neina óvini. Lögregluteymið Hanna og Daniel rannsaka málið. Inn í það blandast trúarhópur sem skotið hefur rótum í fásinninu við norsku landamærin. Drungaleg saga mætir þeim Hönnu og Daniel í hverju spori við rannsóknina ...
Daladrungi er önnur bókin í seríunni MORÐIN Í ÅRE, ægifögru skíða- og útivistarsvæði í Jämtlandi. Fyrsta bókin, Helkuldi, fékk frábærar viðtökur.
Viveca Sten er einn virtasti og vinsælasti glæpasagnahöfundur Norðurlanda. Bókaflokkur hennar, Sandhamn-morðin, sló í gegn víða um heim og hefur notið mikilla vinsælda á Íslandi.
Elín Guðmundsdóttir þýddi.
„Viveca Sten hefur aldrei verið betri. Það er dimmt og kalt og höfundurinn er með mig í helgreipum!“ – Boktogig
„Eins og Vivecu Sten er einni lagið vefur hún saman lýsingum á stórfenglegri náttúru og sterkum persónum svo að úr verður æsispennandi morðgáta sem gagntekur mann.“– Dagens Nyheter
Kilja – 447 bls.
Útgáfuár: 2023