Átján ára stúlka, Kerry, finnst látin í sundlaug eftir að hafa haldið partí í fjarveru foreldra sinna. Eldri systir Kerry er staðráðin að komast að því hvað gerðist. En með því stofnar hún eigin lífi í stórhættu í litlum bæ þar sem allir þekkja alla ...
Nýi spennutryllirinn frá drottningu spennusagnanna.
Æsispennandi metsölubók sem rauk beint í efsta sæti metsölulista víða um heim.
Snjólaug Bragadóttir þýddi.
„Meistari spennunnar.“ – The New Yorker
„Einstakur sögumaður.“ – Publishers Weekly
„Einu sinni enn sýnir Mary Higgins Clark og sannar að hún ber titilinn Drottning spennusagnanna með rentu.“ – New York Journal of Books
Innb. – 270 bls.
Útgáfuár: 2019