Cardenio <br><small><i>Kristján Hreinsson</i></small></p>

Cardenio
Kristján Hreinsson

Translation missing: is.products.product.regular_price
3.999 kr
Translation missing: is.products.product.sale_price
3.999 kr
VSK er innifalinn. Sendingarkostnaður er innifalinn í verði.

Myrtar gleðikonur — valdamiklir karlar

Við rannsókn á morðum nokkurra vændiskvenna kemur í ljós að þær hafa allar reynt af kúga fé af valdamiklum og fjársterkum mönnum. Tveir ungir Íslendingar dragast fyrir tilviljun inn í hringiðu rannsóknarinnar. Þetta eru fræðimaðurinn Bjarno og blaðakonan Elsa. Í leit sinni að lausn ráðgátunnar verður margt undarlegt fólk á vegi þeirra og þau lenda í skrýtnum uppákomum, auk þess sem lífi þeirra er ítrekað ógnað. Getur verið að morðin tengist gömlu handriti að leikritinu Cardenio eftir Shakespeare? Getur verið að lesa megi úr handritinu ógnvekjandi upplýsingar um skipulagða glæpastarfsemi?

Æsispennandi ráðgáta í anda Da Vinci lykilsins.

Skerjafjarðarskáldið Kristján Hreinsson fer á kostum í þessari magnþrungnu og bráðskemmtilegu glæpasögu.

 Kilja – 238 bls.

Útgáfuár: 2019