SÖNN SAKAMÁL 2
Átakanleg sönn saga af hjátrú, mannáti og mannfórnum
Leonarda Cianciulla bjó við hræðilegar aðstæður í æsku. Á unga aldri reyndi hún tvívegis að fyrirfara sér. Eftir margra ára misnotkun flýði hún í fang Raffaeles Pansardi og giftist honum. En móðir hennar þoldi ekki ráðahaginn og lagði bölvun á hjónabandið.
Leonarda trúði því að bölvun móður hennar væri raunveruleg. Líf hennar varð í kjölfarið samfelld harmsaga: Hún þjáðist af flogaveiki, var dæmd í fangelsi fyrir fjársvik, missti heimili sitt í jarðskjálfta og sá á eftir tíu börnum sem öll dóu vegna veikinda í æsku.
Þegar Giuseppe, elsti sonurinn, sagðist ætla að ganga í herinn við upphaf heimsstyrjaldarinnar síðari taldi Leonarda sér trú um að eina leiðin til að vernda hann væri mannfórn . . .
Bölvunin er hrollvekjandi frásögn af einu sérkennilegasta og hrottafengnasta glæpamáli sögunnar, sögð á kraftmikinn og lifandi hátt eins og bestu spennusögur.
„Ryan Green er ótrúlegur sagnamaður ... hann segir ekki aðeins söguna eins og hún gerðist heldur gerir lesandann að þátttakanda í henni.“ – Blackbird
* * * * *
„Ég get ekki beðið eftir að lesa meira eftir þennan höfund.“ – amazon.com
Kilja – 142 bls.
Útgáfuár: 2020