Sænsk rokkstjarna flækist inn í óhugnanlegan heim alþjóðlegra glæpahringa sem versla með illa fengin horn nashyrninga. Nashyrningar eru í útrýmingarhættu en horn þeirra eru eftirsótt og geysiverðmæt. Harðsvíraðir glæpamenn saga hornin af nashyrningunum í skjóli nætur og drepa dýrin eða skilja þau eftir hræðilega útleikin.
Í þessari áhrifamiklu glæpasögu bregður sænski rithöfundurinn Markus Lutteman ljósi á skelfilegan veruleika. Hann byggir bók sína á rækilegri heimildakönnun en tekst að tvinna hana með sannfærandi hætti inn í æsilegan söguþráð spennusögunnar.
Markus Lutteman er þekktur rithöfundur í Svíþjóð og hefur meðal annars skrifað vinsælan glæpasagnaflokk með samlanda sínum, Mons Kallentoft. Blóðmáni hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda og verið þýdd á fjölda tungumála.
Elín Guðmundsdóttir þýddi.
„Óbærilega spennandi, en líka sársaukafull lesning.“ – Spänningszonen
„Æsispennandi og skemmtileg bók.“ – LitteraturMagazinet
„Kraftmikill, ógnvekjandi og fullkominn þriller.“ – Sydsvenskan
„Hraði og spenna út í gegn.“ – Norrköpings Tidningar
Kilja – 415 bls.
Útgáfuár: 2018