Biluð ást <br><small><i> Sigurjón Magnússon</i></small></p>

Biluð ást
Sigurjón Magnússon

4.799 kr
4.799 kr
VSK er innifalinn. Heimsendingarkostnaður er innifalinn í verði ef verslað er fyrir 5.000,- eða meira. Annars er það 1.500,-

Biluð ást er í senn átakanleg fjölskyldusaga og mögnuð lýsing á óslökkvandi hefndarþorsta, vináttu og tryggð sem aldrei bregst.

Jóhann Máni lifði eitt sinn háskalegu lífi, en hann er kominn á efri ár og býr ásamt hundi sínum í austurbæ Reykjavíkur. Viðburðasnauð tilvera hans breytist þó skyndilega þegar ókunnugir menn ráðast að kvöldlagi inn á heimili hans, og í framhaldinu neyðist hann til að leita á náðir fólks sem tengist honum fjölskylduböndum.

 En fortíðin er aldrei langt undan, og meðan Jóhann Máni tekst á við frekari aðsteðjandi ógnir rifjar hann upp örlagatíma í ævi sinni. Hann var aðeins barn að aldri þegar ógæfan kvaddi fyrst dyra, þá glataði hann ást og vináttu föður síns og samheldni fjölskyldunnar rofnaði. Síðar gerði hann sér að fyrirmynd víðfrægan afbrotamann og dróst inn í veröld óreglu og ofbeldis – og forboðinnar ástar.

Sigurjón Magnússon skipaði sér í hóp eftirtektarverðustu rithöfunda okkar með fyrstu skáldsögu sinni, Góða nótt, Silja. Síðan eru skáldsögurnar orðnar níu, þeirra á meðal Borgir og eyðimerkur, skáldsaga um Kristmann Guðmundsson, og Endimörk heimsins sem var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.

Kilja – 486 bls.

Útgáfuár: 2026