Bernskudagar <br><small><i>Óskar Jóhannsson</i></small></p>

Bernskudagar
Óskar Jóhannsson

Translation missing: is.products.product.regular_price
3.999 kr
Translation missing: is.products.product.sale_price
3.999 kr
VSK er innifalinn. Sendingarkostnaður er innifalinn í verði.

Minningar frá æsku og uppvesti.

Í þessari bók segir Óskar Jóhannsson, fyrrverandi kaupmaður í Sunnubúðinni, frá bernsku sinni og uppvexti á Vestfjörðum á kreppuárunum og í Reykjavík á heimsstyrjaldarárunum síðari.

Óskar fæddist í Bolungavík árið 1928. Hann missti föður sinn ungur og móðir hans þurfti einsömul að ala önn fyrir stórum barnahópi.

Sex ára gamall fór Óskar að vinna fyrir sér á sumrin í sveit hjá ókunnugum. Þar kynntist hann vel aldagömlum vinnubrögðum og striti kynslóðanna á Íslandi. Óskar er trúlega með síðustu Íslendingum sem höfðu þann starfa með höndum að sitja hjá ám í haga.

Tólf ára flutti hann að heiman — til Reykjavíkur þar sem hann haslaði sér völl sem blaðasali hjá útlendu hermönnunum sem höfðu lagt undir sig borgina.

Einstaklega nærfærin þroskasaga drengs og lýsing á lífsháttum fátæks alþýðufólks fyrr á tíð.

Jakob F. Ásgeirsson bjó bókina til prentunar.

Innbundin – 280 bls.

Útgáfuár: 2013