![Af hverju báðu þau ekki Evans? <br><small><i> Agatha Christie</i></small></p>](http://uglautgafa.is/cdn/shop/files/AfhverjubaduthauekkiEvans_FRAMAN_{width}x.jpg?v=1738424304)
Var það slys að ókunnugur maður féll fram af klettabrún og dó? Eða bjó eitthvað ískyggilegt að baki? Grunsemdir vakna í huga glaværa vinaparsins Bobby og Francis, ekki síst í ljósi þess hvað maðurinn sagði í andaslitrunum: Af hverju báðu þau ekki Evans?
Hver var Evans? Hvað átti maðurinn eiginlega við? Og hvað var hann að gera á þessum slóðum? Þau ákveða að reyna að svara þessum spurningum. En þau verða þess fljótt áskynja að það er hættulegt að spyrja í tengslum við þetta dauðsfall. Brátt eru þau bæði í bráðri lífshættu ...
Jakob F. Ásgeirsson íslenskaði.
„Saga sem skemmtir og ertir en reynir aldrei á þolrif lesandans eða skynsemi.“ – Times Literary Supplement
„Maður fær aldrei nóg af snilldarlegri og banvænni spennu Christies.“ – Entertainment Weeklys
„Agatha Christie er ódauðleg.“ – Kolbrún Bergþórsdóttir, Kiljunni
Kilja – 287 bls.
Útgáfuár: 2025