![Óveðrið<br><small><i>Steve Sem-Sandberg</i></small></p>](http://uglautgafa.is/cdn/shop/products/Ovedrid_KAPA_FRAMAN_{width}x.jpg?v=1576016506)
Á miðjum aldri heldur Andreas til lítillar eyjar úti fyrir ströndum Noregs, þar sem hann ólst upp, til að fara yfir dánarbú fósturföður síns. Á eyjunni hafði auðugur grasafræðingur, sem var ráðherra í stjórn Quislings á árum heimsstyrjaldarinnar síðari, sett á fót útópíska nýlendu. Ýmsar spurningar vakna í huga Andreasar þegar hann snýr aftur. Af hverju hurfu foreldrar hans svo snögglega? Af hverju var fátækum börnum safnað saman á eyjunni? Af hverju voru hann og Minna systir hans aðskilin? Var ríki grasafræðingurinn raunverulega nasisti eða hugsjónamaður myrkviðurður á villigötum?
Magnþrungin skáldsaga um dularfulla fortíð, sögusagnir sem fléttast inn í veruleikann, arfbundið hatur og ást sem ekkert fær bugað.
Steve Sem-Sandberg er einn af virtustu skáldsagnahöfundum Svíþjóðar. Eitt þekktasta verk hans er Öreigarnir í Lódz sem komið hefur út í íslenskri þýðingu.
Kilja – 332 bls.
Útgáfuár: 2019