Aðeins ein nótt <br><small><i>Simona Ahrnstedt</i></small></p>

Aðeins ein nótt
Simona Ahrnstedt

Translation missing: is.products.product.regular_price
3.499 kr
Translation missing: is.products.product.sale_price
3.499 kr
VSK er innifalinn. Sendingarkostnaður er innifalinn í verði.

„Ástarsaga eins og þær gerast bestar.“– Litteraturmagazinet

Natalía De la Grip er af aðalsætt. Eftir að unnusti hennar sleit trúlofun þeirra hefur eina markmið hennar í lífinu verið að komast í lykilstöðu í fjölskyldufyrirtækinu. David Hammar, sonur verkakonu, hefur auðgast á áhættufjárfestingum. Hann stefnir að því að tortíma De la Grip-fjölskyldunni vegna atburða í fortíðinni. Þegar David og Natalia hittast á hádegisverðarfundi á heitu sumri í Stokkhólmi kemur þeim báðum í opna skjöldu hve mjög þau laðast hvort að öðru. Gegn vilja sínum eiga þau saman ástríðufulla nótt sem hvorugt þeirra getur gleymt. En útilokað er að samband þeirra geti orðið lengra. Þau eru óvinir ...

Sænska ástarsögudrottningin og femínistinn Simona Ahrnstedt sló rækilega í gegn með bókinni Aðeins ein nótt, en áður hafði hún notið mikilla vinsælda fyrir sögulegar ástarsögur sínar. Aðeins ein nótt er fyrsta skáldsaga hennar í syrpu ástarsagna úr nútímanum — um sterkar konur, æsileg ráðabrugg og ástarævintýri.

Elín Guðmundsdóttir þýddi. 

„Mjög vel skrifuð, blæbrigðarík og flott saga, krydduð krassandi erótík og ástarþrá.“ – Litteraturmagazinet

„Mæli frekar með þessari en 50 gráum skuggum.“– Enbokcirkelföralla

„Lesið! Lesið! Lesið!“ – Cosmopolitan 

Kilja – 406 bls.

Útgáfuár: 2016