
Adda lærir að synda er þriðja bókin í hinum sígilda bókaflokki eftir verðlaunahöfundana Jennu og Hreiðar.
Öddu-bækurnar eru meðal vinsælustu barnabóka sem hafa komið út á Íslandi. Þær eru bráðskemmtilegar aflestrar og skrifaðar á vönduðu máli sem öll börn skilja.
Bækurnar eru prýddar teikningum Halldórs Péturssonar.
Margt skemmtilegt gerist í sumarfríinu hjá Öddu og leiksystkinumn hennar, Lísu og Braga. Ný stelpa flytur í kauptúnið og Adda lærir að synda. Hún lærir líka að það borgasr sig ekki að segja ósatt.
Innbundin – 96 bls.
Útgáfuár: 2010