Í nafni sannleikans<br><small><i>Viveca Sten</i></small></p>

Í nafni sannleikans
Viveca Sten

Translation missing: is.products.product.regular_price
3.499 kr
Translation missing: is.products.product.sale_price
3.499 kr
VSK er innifalinn. Sendingarkostnaður er innifalinn í verði.

Siglingabúðir fyrir börn á Lökholmen, lítilli eyju við Sandhamn, njóta mikilla vinsælda. En leiðbeinendunum tekst misjafnlega að hafa stjórn á krakkaskaranum. Sumir verða fyrir einelti. Á meðan sniglast óboðinn gestur um eyjuna og fylgist með hverju skrefi krakkanna.

Nóra Linde glímir við sitt erfiðasta mál sem saksóknari hjá Efnahagsbrotastofnuninni. Hún er staðráðin í að koma ósvífnum hvítflibbaglæpamanni á bak við lás og slá. En réttarhöldin hafa afdrifaríkar afleiðingar.

Thomas Andreasson er kominn til lögreglunnar í Nacka á ný eftir að hafa unnið skamma hríð hjá öryggisfyrirtæki. Á ýmsu gengur í sambandi hans og Pernillu. En Thomas verður að leggja allar áhyggjur af einkalífinu til hliðar þegar barn hverfur úr siglingabúðunum á Lökholmen. Upp hefst æsileg leit þar sem engan tíma má missa.

Mögnuð glæpasaga um græðgi, örvæntingu og varnarleysi.

Í nafni sannleikanser áttunda bókin í hinni geysivinsælu Sandhamn-seríu um æskuvinina, lögfræðinginn Nóru Linde og lögreglumanninn Thomas Andreasson. Sandhamn-bækurnar hafa selst í meira en þremur milljónum eintaka og eru nú gefnar út í 25 löndum.

Elín Guðmundsdóttir þýddi.

„Viveca Sten hefur aldrei verið betri. ... Æsispenna og óvænt atvik allt fram á síðustu blaðsíðu. “ – Dagens Nyheter

„Alvöruþrungin en skemmtileg og notaleg spenna.“ – Kristianstadsbladet

Kilja – 480 bls.

Útgáfuár: 2018