Hættuspil<br><small><i>Viveca Sten</i></small></p>

Hættuspil
Viveca Sten

Translation missing: is.products.product.regular_price
3.499 kr
Translation missing: is.products.product.sale_price
3.499 kr
VSK er innifalinn. Sendingarkostnaður er innifalinn í verði.

Sandhamn í vetrarbúningi — og stórhríðin bylur. Óttaslegin kona kemur til eyjunnar með síðustu ferjunni á aðfangadag. Á öðrum degi jóla finnst lík á ströndinni við Siglingahótelið. Á meðan lögregluforinginn Thomas Andreasson rannsakar málið finnst annað lík.

Æskuvinkona Thomasar, Nóra Linde, glímir við vandamál sem stofnar heiðri hennar sem lögfræðings í hættu. Hún neyðist til að taka ákvörðun sem breytir lífi hennar.

Áhrifamikil spennusaga um brostnar vonir, bældar minningar og dulda skömm.

Hættuspiler sjötta bókin í hinni geysivinsælu Sandhamn-seríu þar sem lögfræðingurinn Nóra Linde og rannsóknarlögreglumaðurinn Thomas Andreasson taka höndum saman við lausn glæpamáls. Sandhamn-bækurnar hafa selst í meira en þremur milljónum eintaka og eru nú gefnar út í tuttugu og fimm löndum.

Elín Guðmundsdóttir þýddi.

„... spennandi frá upphafi til enda. Bók sem þú getur ekki lagt frá þér.“ – Byggnadsarbetaren

„Viveca Sten kann að fanga athygli lesandans ... Meðal allra bestu sænsku glæpasagnahöfundanna.“ – Norran

„Ég elska Vivecu Sten!“ – Dagens Nyheter

 

Kilja – 365 bls.

Útgáfuár: 2016