Lengsta nóttin <br><small><i>Ann Cleeves</i></small></p>

Lengsta nóttin
Ann Cleeves

Translation missing: is.products.product.regular_price
3.999 kr
Translation missing: is.products.product.sale_price
3.999 kr
VSK er innifalinn. Sendingarkostnaður er innifalinn í verði.

Í þéttri snjókomu og skafrenningi hugsar Vera Stanhope um það eitt að komast sem fyrst heim á Land-Rovernum sínum. En hún villist af leið og allt í einu blasir við henni yfirgefin bifreið í vegkantinum. Bílstjóradyrnar eru opnar en bílstjórinn hvergi sjáanlegur. Í aftursætinu reynist vera ungbarn í bílstól.

Vera tekur barnið með sér svo það frjósi ekki í hel og ekur að gömlu setri þar sem faðir hennar ólst upp. Þar er mikill gleðskapur í gangi, fólk að fagna komandi jólahaldi. En úti fyrir setrinu gengur Vera fram á unga konu sem liggur andvana í snjónum. Gæti hún verið móðir barnsins?

Bækur breska verðlaunahöfundarins Ann Cleeves um Veru Stanhope njóta mikilla vinsælda, ekki síst eftir gerð velheppnaðra sjónvarpsþátta. Þetta er sjötta bókin um Veru sem kemur út á íslensku.

Þórdís Bachmann þýddi.

Frábær ... Þessi æsispennandi bók er skyldulesning jafnt fyrir aðdáendur og þá sem aldrei hafa lesið Veru-bók.“ – Publishers Weekly

„Ann Cleeves er fimur sögumaður sem kann að halda athygli lesandans ... Vald hennar á tungunni og hugvitssamleg tækni hennar við að segja sögu gera hana að einum allra snjallasta glæpasagnahöfundi samtímans.“ – Sunday Telegraph

Kilja – 416 bls.

Útgáfuár: 2022