DRAUGASTOFAN 4
Loksins á að opna lestarstöðina í Drungadal aftur. Allir eru himinlifandi. En þá kemur draugur og vinnur skemmdarverk þannig að lestirnar komast ekki á stöðina! Bíbí borgarstjóri er örvæntingarfull og biður Krumma og Eddu hjá Draugastofunni um hjálp. Hver er draugurinn og af hverju vill hann ekki að lestirnar stansi í Drungadal?
Ráðgátan um ógurlega lestarslysið er fjórða bókin í bókaflokki Kristinu Ohlsson um Draugastofuna. Ríkulega myndskreytt skemmtilegum teikningum eftir myndhöfundinn Moa Wallin. Bíðið spennt eftir næstu bók í röðinni: Ráðgátunni um ógurlega lestraslysið.
Kristina Ohlsson er einn vinsælasti spennusagnahöfundur Norðurlanda. Barna- og ungmennabækur hennar (fyrir 6–13 ára) hafa líka slegið í gegn og verið þýddar á fjölda tungumála.
Tinna Ásgeirsdóttir íslenskaði.
Innbundin – 112 bls.
Útgáfuár: 2026