Drungaleg þoka liggur yfir haffletinum. Gamla fólkið á eyjunum segir að hún sé forboði hræðilegra atburða. Tuva er sú eina sem áttar sig á því að þokan tengist veru úr fortíðinni. Framferði mannfólksins hefur vakið reiði verunnar og hefnd vofir yfir. Og Tuva er sú eina sem getur komið í veg fyrir aðvífandi ógn ...
Sæþokan er önnur bókin í mögnuðum þríleik sem mæðgurnar Camilla og Viveca Sten hafa skrifað um Hafsfólkið. Bækurnar slógu í gegn í Svíþjóð og fyrsta bókin, Hyldýpið, fékk frábærar viðtökur íslenskra lesenda.
„Ein mest spennandi ungmennabók ársins.“ – Dagens Nyheter
„Mjög áhugaverð bók. Aðalpersónan Tuva er sterk og hugrökk stelpa sem maður vill lesa um.“ – Arbetarbladet
„Einstaklega frábær!“ – Tidningen Kulturkvinden
„Hrikalega spennandi ... Sannkallaður þriller.“ – Bókabloggið Johannes deckarhörna
Innbundin – 368 bls.
Útgáfuár: 2019