
Crimetime-verðlaunin í Svíþjóð: S K Á L D S A G A Á R S I N S
Smíðakennari finnst látinn í kennslustofunni sinni. Við hliðina á líkinu liggur gömul bekkjarmynd úr gagnfræðiskóla þar sem búið er að krassa yfir andlit hins myrta. Lögregluforinginn Fabian Risk tekur að sér rannsókn málsins. Brátt kemur í ljós að fleiri fórnarlömb eru á lista morðingjans. Hver af gömlu bekkjarfélögunum skyldi vera næstur í röðinni?
Fórnarlamb án andlits sló í gegn þegar hún var gefin út í Svíþjóð — og hefur síðan farið sigurför um heiminn.
Elín Guðmundsdóttir þýddi.
„Einn allra besti skandinavíski þrillerinn síðustu tíu árin. Enn meiri spenna en hjá Jo Nesbo ...“ – Tony Parsons
„Loksins sannur arftaki Stiegs Larsson.“ – NDR Radio
„Sláandi stórkostlega góð ... Afburðasnjöll út í gegn.“ – Norrbottens-Kuriren
Kilja – 510 bls.
Útgáfuár: 2016