Villistrákarnir <br><small><i> William S. Burroughs </i></small></p>

Villistrákarnir
William S. Burroughs

4.999 kr
4.999 kr
VSK er innifalinn. Heimsendingarkostnaður er innifalinn í verði ef verslað er fyrir 5.000,- eða meira. Annars er það 1.500,-

„Hvað étur peningavélin? Hún étur æsku, frjálsræði, lífmagn, fegurð, og umfram allt, étur hún sköpunarmátt. Hún étur gæði og skítur magni.“ – William Burroughs

Í þessari frægu bók bandaríska rithöfundarins Williams S. Burroughs segir frá dulrænum skæruher hömlulausra hinseginn ungmenna sem segja siðmenningu Vesturlanda stríð á hendur.

Þeir brjóta allar reglur samfélagsins í sama mund og hrun vestrænnar siðmenningar vofir yfir.

Með brotakenndum stíl sínum leikur Burroughs sér með tíma og rúm og dregur lesandann inn í óreiðukennda veröld þar sem siðferði, vald og mannlegt eðli eru stöðugt á reiki. Hefðbundin mörk leysast upp þar sem hold, langanir, frelsi, tækni og ofbeldi fléttast saman í trylltri sýn á fallandi heim.

Villistrákunum hefur verið lýst sem martraðakenndu meistaraverki, hrífandi og ögrandi í senn.

Örn Karlsson íslenskaði.

Ólafur Páll Sigurðsson ritaði eftirmála.

William S. Burroughs (1914–1997) var einn róttækasti og frumlegasti rithöfundur tuttugustu aldar. Í verkum sínum braut hann markvisst niður hefðbundið form skáldsögunnar og ögraði ríkjandi hugmyndum um siðferði, vald og samfélag. Líf hans einkenndist af stöðugri leit að frelsi — bæði listrænu og persónulegu — og búsetu víða um heim, frá Mexikóborg til Tangier, Parísar, London og New York. Með verkum á borð við Naked Lunch og The Wild Boys markaði hann sér sérstöðu í bókmenntasögu tuttugustu aldar og má kenna áhrifa hans víða.

Kilja – 248 bls.

Útgáfuár: 2026