Veiðistöng handa afa mínum <br><small><I>Gao Xingjian</i></small></p>

Veiðistöng handa afa mínum
Gao Xingjian

4.799 kr
4.799 kr
VSK er innifalinn. Heimsendingarkostnaður er innifalinn í verði ef verslað er fyrir 5.000,- eða meira. Annars er það 1.500,-

Veiðistöng handa afa mínum geymir sex meistaralega samdar sögur eftir kínverska Nóbelsskáldið Gao Xingjian.

Sögurnar fjalla um hverfulleiki ástar og lífs, vonir og ótta en ekki síst ásækni minninga, þar sem fortíðin verður ekki umflúin.

Upplifunum og augnablikum í lífi einstaklinga er stillt upp andspænis stærri veruleika. Sögurnar eru hlaðnar nákvæmum smáatriðum og fíngerðum vísunum svo að unun er að lesa.

 Í þessum sex sögum er brugðið upp ljóðrænum myndum af mótum minninga og veruleika þar sem hið ósagða er fangað af listfengi skáldsins og innsæi listmálarans.

Gyrðir Elíasson íslenskaði.

Gao Xingjian, rithöfundur, leikskáld, gagnrýnandi og listmálari, hlaut bókmenntaverðlaun Nóbels árið 2000. Hann fæddist í Kína árið 1940. Í menningarbyltingu Maós á sínum tíma neyddist hann til að brenna verk sín til að forðast ofsóknir yfirvalda. Síðar voru verk hans bönnuð í Kína. Árið 1987 yfirgaf hann heimaland sitt og settist að í Frakklandi. Hann er nú franskur ríkisborgari.

 Gao lítur ekki á sig sem pólitískan flóttamann eða rödd frelsileitandi Kínverja. Hann sé einfaldlega listamaður, einstaklingur sem skrifar bókmenntir fyrir aðra einstaklinga án þess að þjóna nokkrum öðrum tilgangi en að leita sannleika í heimi mannsandans.

Gyrðir Elíasson (f. 1961), rithöfundur, ljóðskáld, þýðandi og listmálari, er handhafi Íslensku bókmenntaverðlaunanna árið 2000 og Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs árið 2011. Honum hefur tvívegis hlotnast Íslensku þýðingaverðlaunin (2012 og 2015). Eftir Gyrði liggja yfir 40 frumsamdar bækur, skáldsögur, smásögur, ljóð og smáprósar, auk hátt í 30 þýðinga.

 Kilja – 166 bls.

Útgáfuár: 2026