Jakob stendur á tímamótum. Honum vegnar vel í starfi, en sambandið við eiginkonuna, Hrefnu, er orðið erfiðara en áður, og hann hefur fjarlægst stálpaðan son sinn. Þegar sagan hefst föstudag einn síðla vetrar eru þau hjónin á leið í bústað austur í sveitum, og tíðindalaus helgi framundan. En atburður, sem gerist þann sama dag og lætur í fyrstu lítið yfir sér, vekur brátt hjá Jakobi áleitnar spurningar og boðar jafnframt harkaleg hvörf í lífi hans.
Allt frá því Sigurjón Magnússon sendi frá sér skáldsöguna Góða nótt, Silja árið 1997 hefur hann verið meðal okkar fremstu skáldsagnahöfunda. Skáldsaga hans um Kristmann Guð mundsson, Borgir og eyðimerkur, vakti mikla athygli og saga hans Endimörk heimsins var tilnefnd til Íslensku bók mennta verðlaunanna. Þegar við lifum er tíunda skáldsaga Sigurjóns.
Innbundin – 196 bls.
Útgáfuár: 2026