Saga tveggja borga<br><small><i>Charles Dickens</i></small></p>

Saga tveggja borga
Charles Dickens

Translation missing: is.products.product.regular_price
3.999 kr
Translation missing: is.products.product.sale_price
3.999 kr
VSK er innifalinn. Sendingarkostnaður er innifalinn í verði.

„Þetta voru bestu tímar, þetta voru verstu tímar ...“

Charles Darnay er franskur aðalsmaður sem er ranglega sakaður um landráð. Sydney Carton er svallsamur lögmaður sem er fenginn til að verja hann. Báðir bera þeir ástarhug til sömu konunnar. Örlög þeirra ráðast í blóðugum átökum í upphafi frönsku byltingarinnar sem hófst með árás á Bastilluna 14. júlí 1789.

Saga tveggja borga kom út árið 1859 þegar margir óttuðust að bylting kynni að vofa yfir víða í Evrópu. Fáir skynjuðu betur en breski rithöfundurinn Charles Dickens að djúpstætt félagslegt óréttlæti gat leitt til byltingarástands. Honum var líka ljóst að háleitar hugsjónir áttu ekki samleið með ofbeldi og stjórnelysi. Í Sögu tveggja borga lýsir Dickens með mögnuðum hætti og af einstöku innsæi þeim vonum sem margir báru í brjósti við upphaf frönsku byltingarinnar og þeim hryllingi sem hún leiddi til.

Eitt af meistaraverkum heimsbókmenntanna.

Þórdís Bachmann þýddi.

Innbundin – 592 bls.

Útgáfuár: 2018