
Ég tók upp bókina, sneri henni við og las nafnið Jules Verne og titilinn Grant skipstjóri og börn hans prentað gylltum stöfum á litaða kápumynd sem sýndi furðulegan leiðangur í undarlegu landslagi. „Hvar fékkstu þessa bók?“ spurði ég.
Strákurinn sem las Jules Verne er áhrifamikil söguleg skáldsaga sem gerist á Spáni á fimmta áratug síðustu aldar. Nino er níu ára gamall og elst upp í búðum Þjóðvarðliðsins í bænum Fuensanta de Martos. Sumarið 1947 kemur hinn dularfulli Pepe Portúgali til bæjarins og sest þar að í gamalli, yfirgefinni myllu. Pepe verður besti vinur hins veiklulega og lágvaxna Ninos.
Vinskapur þeirra og lestur bóka Jules Verne verður til þess að Nino fer að sjá skæruhernaðinn á heimaslóðum sínum undir forystu hins goðsagnakennda leiðtoga Cencerro í nýju ljósi. En Nino gætir þess vandlega að halda því fyrir sig hvers hann verður áskynja.
Skúli Thoroddsen íslenskaði.
„Almudena Grandes er eitt af höfuðskáldum okkar samtíðar.“ – Mario Vargas Llosa
Almudena Grandes (1960–2021) er talin meðal fremstu kvenrithöfunda Spánar. Hún kvaddi sér eftirminnilega hljóðs með erótísku sögunni Las edades de Lulú árið 1989. Hún er margverðlaunuð fyrir bækur sínar og hefur meðal annars hlotið spænsku bókmenntaverðlaunin. Meðal þekktustu verka hennar eru sögulegar skáldsögur undir yfirskriftinni Episodios de una Guerra Interminable (Atburðir í stríði sem engan endi tók) og lýsa þróun samfélagsins í kjölfar borgarastyrjaldarinnar á Spáni. Strákurinn sem las Jules Verne er ein þessara sagna.
Skúli Thoroddsen (f. 1949) er lögfræðingur að mennt. Hann hefur áður þýtt skáldsöguna Hlaupavarginn (2024) eftir Kerstin Ekman og skrifað skáldsöguna Ínu (2019), sem fjallar um atburði við Öskju árið 1907, og ljóðabókina Í ljósi tímans (2002).
Kilja – 507 bls.
Útgáfuár: 2025