Litlar konur - Ný útgáfa <br><small><I>Louisa May Alcott</i></small></p>

Litlar konur - Ný útgáfa
Louisa May Alcott

4.799 kr
4.799 kr
VSK er innifalinn. Heimsendingarkostnaður er innifalinn í verði ef verslað er fyrir 5.000,- eða meira. Annars er það 1.500,-

Litlar konur (Little Women) eftir bandaríska rithöfundinn Louisu May Alcott er ein vinsælasta skáldsaga síðari tíma.

Bókin segir uppvaxtarsögu fjögurra systra — hinnar fögru og dygðugu Möggu, strákastelpunnar Jóu, hinnar blíðlyndu Betu og ofdekruðu Önnu litlu. Tilvera þeirra fer úr skorðum þegar fjárhagur fjölskyldunnar hrynur. Í sama mund er faðir systranna kallaður í herinn, en sagan gerist í skugga bandaríska borgarastríðsins á nítjándu öld. Nokkru síðar fer móðir þeirra að hjúkra föðurnum. Systurnar fjörmiklu þurfa þá að takast á við lífið upp á eigin spýtur.

Hugljúf og skemmtileg skáldsaga sem hefur heillað kynslóðir lesenda, eða allt frá því að hún kom fyrst út árið 1868.

Louisa May Alcott (1832–1888) var þekktur feministi á sinni tíð og tók einnig þátt í baráttunni fyrir afnámi þrælahalds. Litlar konur er frægasta bók hennar. Hún byggir að hluta á æsku hennar sjálfrar. Alcott barðist hart fyrir því að konur fengju kosningarétt og var fyrsta konan til að skrá sig sem kjósanda í bænum Concord í Massachusetts.

Endurskoðuð þýðing Páls Skúlasonar ritstjóra.

Kilja – 200 bls.

Útgáfuár: 2026