Langur vegur frá Kensington <br><small><i>Muriel Spark</i></small></p>

Langur vegur frá Kensington
Muriel Spark

Translation missing: is.products.product.regular_price
2.499 kr
Translation missing: is.products.product.sale_price
2.499 kr
VSK er innifalinn. Sendingarkostnaður er innifalinn í verði.

Nancy Hawkins er ung, feitlagin ekkja. Hún vinnur á bókaforlagi í Lundúnum á sjötta áratug tuttugustu aldar. Helsti óvinur hennar er hinn sjálfumglaði rithöfundur Hector Bartlett sem hún getur ekki setið á sér að kalla „pisseur de copie“. Þetta reynist afdrifaríkt. Örlög þeirra tvinnast saman með óvæntum hætti. Margar fleiri eftirminnilegar persónur koma við sögu í þessari bráðfyndnu og hugmyndaríku bók.

Langur vegur frá Kensington er ein allra besta saga Muriel Spark. Eins og í flestum öðrum bókum hennar tvinnast þar saman harmþrunginn undirtónn og óviðjafnanlegur húmor.

Muriel Spark (1918–2006) var einn snjallasti skáldsöguhöfundur Breta á síðari hluta tuttugustu aldar. Frægasta skáldsaga hennar er The Prime of Miss Jean Brodie.

Þórdís Bachmann þýddi.

Kilja – 182 bls.

Útgáfuár: 2011