Ung bandarísk kona heldur á vit íslenskra forfeðra sinna – með óvæntum endalokum. Áleitin og spennandi skáldsaga eftir höfund af íslenskum ættum. Bókin kom út vestanhafs fyrr á þessu ári og hefur fengið frábærar viðtökur.
Freyja elst upp í dæmigerðu bandarísku úthverfi. En á sumrin heimsækir hún ættingja sína í Gimli í Kanada. Þar kynnist hún Birdie frænku sinni sem er í senn hrífandi og ógnvekjandi. Birdie opnar henni framandi heim íslensku forfeðranna. Loks kemur að því að Freyja heldur á vit forfeðranna – með óvæntum endalokum.
Áleitin og spennandi skáldsaga eftir höfund af íslenskum ættum.
Í bókinni er skyggnst inn í íslenskan menningarheim frá sjónarhóli fólksins sem yfirgaf Ísland undir lok nítjándu aldar en varðveitti íslenska menningu fjarri ættjörðinni.
Þórdís Bachmann þýddi.
Innbundin – 378 bls.
Útgáfuár: 2009