Fimmta barnið <br><small><I>Doris Lessing</i></small></p>

Fimmta barnið
Doris Lessing

4.799 kr
4.799 kr
VSK er innifalinn. Heimsendingarkostnaður er innifalinn í verði ef verslað er fyrir 5.000,- eða meira. Annars er það 1.500,-

Fjögur yndisleg börn, fallegt gamalt hús, ástríkir ættingjar og vinir – líf Harriet og Davids Lovatt er hamingjusamt og gleðiríkt. En þegar fimmta barnið fæðist leggst dimmur skuggi yfir heimilislífið. Hinn ungi Ben er stór og ófrýnilegur, ofbeldisfullur og stjórnlaus. Harriet berst við að annast nýfætt barnið en stendur frammi fyrir myrkum og undarlegum mótþróa. Óttaslegin spyr hún sjálfa sig hvað það eiginlega sé sem hún hefur fætt í þennan heim …

Áhrifarík skáldsaga eftir Nóbelsverðlaunahafann Doris Lessing.

Ragnheiður Jónsdóttir íslenskaði. 

„Það fer hrollur um mann við lesturinn en það er ómögulegt að leggja bókina frá sér ... áhrifum hins undarlega og framandi barns á fjölskylduna er lýst af yfirvegun sem gerir vaxandi hryllinginn enn áhrifameiri.“ Sunday Times

„Lesið og skjálfið!“ Independent

Breski rithöfundurinn Doris Lessing (1919–2013) hlaut margskonar viðurkenningar fyrir verk sín, þar á meðal Nóbelsverðlaunin í bókmenntum árið 2007. Sjö bóka hennar hafa verið þýddar á íslensku, þar á meðal Grasið syngur (The Grass is Singing) í þýðingu Birgis Sigurðssonar, Minningar einnar sem eftir lifði (The Memoirs of a Survivor) í þýðingu Hjartar Pálssonar og Í góðu hjónabandi (A Proper Marriage) í þýðingu Fríðu Á. Sigurðardóttur. Af öðrum rómuðum skáldsögum hennar, auk Fimmta barnsins, má nefna The Golden Notebook og The Good Terrorist. Hún gaf einnig út sjálfsævisögu sína í tveimur bindum, Under My Skin og Walking in the Shade. Doris Lessing lést 17. nóvember 2013, 94 ára að aldri.

Ragnheiður Jónsdóttir hefur lokið BS-prófi í sálfræði. Hún hefur starfað við þýðingar frá því hún útskrifaðist úr meistaranámi í þýðingafræði frá Háskóla Íslands vorið 2024. 

Kilja – 184 bls.

Útgáfuár: 2026