Ferðasaga kúrekans <br><small><I>Andy Adams</i></small></p>

Ferðasaga kúrekans
Andy Adams

4.799 kr
4.799 kr
VSK er innifalinn. Heimsendingarkostnaður er innifalinn í verði ef verslað er fyrir 5.000,- eða meira. Annars er það 1.500,-

Ferðasaga kúrekans segir frá rekstri þrjú þúsund nautgripa frá Rio Grande í syðsta hluta Texas í Bandaríkjunum allt norður til Montana árið 1882. Ferðin tekur fimm mánuði. Á leiðinni kynnist sögumaður, piltur um tvítugt, langrekstrarlífinu, hættum þess og erfiðleikum – þreytunni á næturvöktum, skelfingunni sem grípur um sig þegar hjörðin tekur skyndilega á rás í næturhúminu, ofbeldinu sem gat brotist út á leiðinni, glímunni við þurrka og fljót – en líka skemmtunum og sögunum fróðlegu sem kúrekarnir segja hver öðrum við varðeldinn á kvöldin.

Ragnar Hauksson íslenskaði.

Andy Adams (1859–1935), bóndasonur frá Indiana, var lengi kúreki og meðal annars rekstrarstjóri. Hann skrifaði skáldsögur, leikrit, smásögur og barnabækur. Ferðabók kúrekans (The Log of a Cowboy) var fyrsta skáldsaga hans. Hún kom út árið 1903 og hefur verið endurprentuð reglulega síðan. Bókin þykir gefa lifandi og sanna mynd af því hvernig kúrekalíf í „villta vestrinu“ var í raun og veru, ólíkt þeirri goðsagnakenndu mynd sem dregin hefur verið upp í fjölmörgum Hollywood-kvikmyndum.

 „Hafi einhvern tíma verið til besti „vestri“ allra tíma, þá er það Ferðabók kúrekans.The New York Times

Kilja – 365 bls.

Útgáfuár: 2026