Draumur um Babýlon <br><small><i>Richard Brautigan</i></small></p>

Draumur um Babýlon
Richard Brautigan

Translation missing: is.products.product.regular_price
4.299 kr
Translation missing: is.products.product.sale_price
4.299 kr
VSK er innifalinn. Sendingarkostnaður er innifalinn í verði.

Einkaspæjarasaga frá 1942

Þegar einkaspæjarinn C. Card er ráðinn til að ræna líki úr líkhúsi neyðist hann til að láta af dagdraumunum, finna kúlur í byssuna sína og hefjast handa svo aðrir skjóti honum ekki ref fyrir rass.

Ekki síðan Silungsveiði í Ameríku kom út hefur Brautigan tekist að tvinna jafn snilldarlega saman hinum villta húmor sínum og ljóðræna ímyndunaraflinu sem hann er frægur fyrir. Í þessari drepfyndnu skopstælingu á harðsoðna reyfarastílnum verða ævintýri hins subbulega og vitgranna C. Card að sannri lestrardásemd jafnt fyrir hug og hjarta.

Þórður Sævar Jónsson þýddi.

Bandaríski rithöfundurinn Richard Brautigan (1935–1984) ólst upp við sára fátækt í Oregon-ríki á vesturströnd Bandaríkjanna. Um tvítugt fluttist hann til San Francisco þar sem hann bjó lengst af ævinni. Þar hóf hann höfundarferil sinn með ljóðagerð. Bækur hans fengu litla athygli þar til Silungsveiði í Ameríku kom út árið 1967. Sú bók sló rækilega í gegn og hefur selst í yfir 4 milljónum eintaka. Draumur um Babýlon er tíunda bókin eftir Brautigan sem kemur út í íslenskri þýðingu.

Kilja – 237 bls.

Útgáfuár: 2023