Á heitum júlímorgni finnst sjórekið líf á strönd Sandhamn-eyju. Rúmri viku síðar finnst lík af konu á gistiheimili. Rannsókn málanna reynist erfið, enda vísbendingar fáar og ekki ljóst hvernig dauðsföllin tengjast hinu friðsama eyjasamfélagi.
Svikalogn er fyrsta bókin í hinni geysivinsælu Sandhamn-seríu um æskuvinina, lögfræðinginn Nóru Linde og lögreglumanninn Thomas Andreasson.
Sandhamn-bækurnar hafa selst í um fjórum milljónum eintaka og eru nú gefnar út í 30 löndum. Sjónvarpsþættirnir, Morden í Sandhamn (Sandhamn-morðin), sem byggðir eru á bókunum, njóta líka fádæma vinsælda.
Sigurður Þór Salvarsson þýddi.
„Spennukrimmi sem rígheldur lesandanum.“ – Aftonbladet
„[Þessi bók] skipar Vivecu Sten á bekk með fremstu glæpasagnahöfundum Svía.“ – Dagbladet
Kilja – 440 bls.
Útgáfuár: 2019