Fahrenheit 451<br><small><i>Ray Bradbury</i></small></p>

Fahrenheit 451
Ray Bradbury

Translation missing: is.products.product.regular_price
3.999 kr
Translation missing: is.products.product.sale_price
3.999 kr
VSK er innifalinn. Sendingarkostnaður er innifalinn í verði.

Í þessari mögnuðu framtíðarskáldsögu hefur gagnvirkt sjónvarp náð yfirráðum yfir mannlífinu. Bækur eru bannaðar. Aðalsöguhetjan, Montag, gengur til vinnu sinnar á hverjum degi. Starf hans felst í því að uppræta hættulegustu ógn samfélagsins, hið prentaða orð, með því að brenna allar bækur sem finnast og húsin þar sem þær hafa leynst. Dag einn kynnist Montag sérviturri stúlku sem kynnir fyrir honum fortíð þar sem fólk lifði ekki í ótta og bækur voru lesnar. Smám saman fer Montag að endurskoða allt sem honum hefur verið kennt — með ógnvænlegum afleiðingum.

Fahrenheit 451 er jafnan talið meistaraverk bandaríska rithöfundarins Ray Bradburys (1920–2012) sem er þekktur fyrir vísindaskáldsögur sínar.

Þórdís Bachmann þýddi.

„Meistaraverk.“ – Boston Globe

„Afburðasnjöll ... Bradbury dregur upp áhrifamikla mynd af brjálæðislegum heimi sem er kvíðvænlega líkur okkar eigin.“ – The New York Times

„Dýrleg amerísk klassík sem allir ættu að lesa.“ – The Boston Globe

„Frábær sögumaður.“ – The Washington Post

 Kilja – 224 bls.

Útgáfuár: 2019