Fjölmiðlar 2006 <br><small><i>Ólafur Teitur Guðnason</i></small></p>

Fjölmiðlar 2006
Ólafur Teitur Guðnason

Translation missing: is.products.product.regular_price
2.499 kr
Translation missing: is.products.product.sale_price
2.499 kr
VSK er innifalinn. Sendingarkostnaður er innifalinn í verði.

Áhrif fjölmiðla eru mikil, en lengst af hafa þeir búið við lítið sem ekkert faglegt aðhald. Á þessu varð markverð breyting í upphafi árs 2004 þegar Ólafur Teitur Guðnason hóf að skrifa vikulega fjölmiðlapistla í Viðskiptablaðið. Pistlar Ólafs eru snarpir og beinskeyttir og hafa vakið mikla athygli, enda hefur höfundurinn verið óhræddur við að taka kollega sína á beinið.

Fjölmiðlapistlar Ólafs koma nú út á bók þriðja árið í röð. Fjölmiðlar 2006 geymir alla fjölmiðlapistla Ólafs Teits árið 2006 og er óhætt að segja að hún bregði upp einstakri mynd af blaðamennsku á Íslandi á viðburðaríku ári. Í bókinni eru rakin ítarlega fjölmörg dæmi um undarleg, hæpin, vafasöm og ámælisverð vinnubrögð fréttamanna.

Engum sem les þessa bók dylst að fjölmiðlum veitir sjálfum ekki af því aðhaldi sem þeim er ætlað að sýna öðrum

Kilja – 384 bls.

Útgáfuár: 2007