Tveir mánuðir á Íslandi 1845 <br><small><i> Max Nordau</i></small></p>

Tveir mánuðir á Íslandi 1845
Max Nordau

4,999 kr
4,999 kr
VSK er innifalinn. Heimsendingarkostnaður er innifalinn í verði ef verslað er fyrir 5.000,- eða meira. Annars er það 1.500,-

Sumarið 1874 kom ungur blaðamaður að nafni Max Nordau til Íslands til að fylgjast með þúsund ára afmæli Íslandsbyggðar. Hápunktur ferðarinnar var þjóðhátíðin á Þingvöllum þegar Kristján IX Danakonungur afhenti Íslendingum stjórnarskrá.

Nordau var beittur penni, glöggur á hið spaugilega og óhræddur við að fella dóma um það sem fyrir augu bar, oft með vægðarlausri kaldhæðni. Hann lýsti bæjarlífinu í Reykjavík fyrir lesendum sínum, húsakosti landsmanna, klæðnaði, matarvenjum, útliti þeirra og skapgerð. Hann dáðist að ýmsu í fari þjóðarinnar en hneykslaðist á öðru og dró hvergi undan þegar honum virtist eitthvað frumstætt, sérkennilegt eða hlægilegt.

Úr varð litrík og nærgöngul mynd af landi og þjóð, séð með augum menntaðs Evrópumanns á 19. öld, sem birtist hér í fyrsta sinn á íslensku.

Guðmundur J. Guðmundsson íslenskaði og ritaði inngang.

Kilja – 194 bls.

Útgáfuár: 2026