Þögn – á öld hávaðans <br><small><i> Erling Kagge</i></small></p>

Þögn – á öld hávaðans
Erling Kagge

Translation missing: is.products.product.regular_price
4.999 kr
Translation missing: is.products.product.sale_price
4.999 kr
VSK er innifalinn. Sendingarkostnaður er innifalinn í verði.

Geti ég ekki gengið, klifrað eða siglt frá heiminum hef ég kennt mér að loka hann úti. Það tók tíma að læra þetta. Það var ekki fyrr en mér varð ljóst að ég hafði grundvallarþörf fyrir þögn, að ég gat byrjað að leita hennar – og þarna, djúpt undir glym umferðar og hugsana, tónlistar og vélarhljóða, snjallsíma og snjóblásara var hún og beið mín. Þögnin.

Í þessari einstöku bók spyr norski ævintýramaðurinn Erling Kagge þriggja spurninga: Hvað er þögn? Hvar er hún? Af hverju er þögnin núna mikilvægari en nokkru sinni í sögu mannkyns? Í kjölfarið gerir hann 33 tilraunir til að svara þessum spurningum.

Erling Kagge nýtir einstæða lífsreynslu sína á mörgum sviðum til að nálgast viðfangsefni sitt – mátt þagnarinnar.

Magnús Þór Hafsteinsson íslenskaði.

Norðmaðurinn Erling Kagge (1963) er lögfræðingur að mennt auk þess sem hann las heimspeki við Cambridge-háskóla. Hann er víðfrægur pólfari, fjalla- og siglingagarpur, stórvirkur bókaútgefandi (Kagge forlag), rithöfundur og listaverkasafnari. Hann gekk fyrstur manna á skíðum bæði á norðurpólinn og suðurpólinn án utanaðkomandi aðstoðar. Í kjölfarið kleif hann hæsta tind heims, Everest-fjall. Þar með varð hann fyrstur í heiminum til að ljúka hinni svokölluðu „þriggja póla þolraun“ sem felst í því að komast á tveimur jafnfljótum á báða póla og upp á hæsta tind jarðar. Kagge er höfundur margra bóka sem hlotið hafa afbragðs viðtökur og verið þýddar á um 40 tungumál. Þögn á öld hávaðans er fyrsta bók hans sem kemur út á íslensku.

þagnarinnar.

Kilja – 143 bls.

Útgáfuár: 2024