Þegar Ísland sagði nei <br><small><i> Björn Bjarnason</i></small></p>

Þegar Ísland sagði nei
Björn Bjarnason

4,999 kr
4,999 kr
VSK er innifalinn. Heimsendingarkostnaður er innifalinn í verði ef verslað er fyrir 5.000,- eða meira. Annars er það 1.500,-

Í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst 2026 höfnuðu Íslendingar því að aðildarviðræður við Evrópusambandið yrðu hafnar að nýju. Í þessari bók er rakinn aðdragandi þess að málið var lagt fyrir þjóðina og hvernig tilraun íslenskra stjórnvalda til að endurvekja aðildarferlið þróaðist.

Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra, var formaður utanríkismálanefndar Alþingis þegar samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið var lögfestur árið 1993. Hann bregður ljósi á þróun Evrópuumræðunnar á innlendum vettvangi frá þeim tíma til úrslitanna 2026. Þá greinir hann þátt framkvæmdastjórnar Evrópu sambandsins vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar.

Frásögnin er skrifuð frá sjónarhóli þátttakanda og er reist á opinberum gögnum, ræðum, fréttum og samtímaskrifum höfundar. Atburðarásin sjálf varpar ljósi á hvers vegna meirihluti þjóðarinnar sagði nei.

Þetta er saga um pólitíska ábyrgð, óskýr markmið og grundvallarspurningu lýðræðisins: Á þjóðaratkvæðagreiðsla að staðfesta eða hafna skýrri pólitískri ákvörðun stjórnvalda — eða koma í stað hennar?

Kilja – 152 bls.

Útgáfuár: 2026