Hvers vegna kapítalisminn er lausnin en ekki vandamálið.
Það er álit margra að kapítalisminn sé varhugaverður og gangi jafnvel í berhögg við grundvallaratriði kristinnar trúar. Byggist kapítalisminn ekki á græðgi og sjálfselsku? Er auðsöfnun ekki af hinu illa? Er gegndarlaus neysluhyggja ekki afsprengi kapítalismans? Er kapítalismi ekki á góðri leið með að þurrausa auðlindir jarðar?
Í þessari bók tekst höfundur á meistaralegan hátt á við þessar og fleiri goðsagnir um kapítalismann. Hann sýnir fram á með tölfræðilegum staðreyndum að fátækt, ójöfnuður og mengun er langminnst í ríkjum þar sem kapítalisminn fær að njóta sín. Hann hrekur með sannfærandi hætti goðsögnina útbreiddu um að kapítalisminn byggist á græðgi og sjálfselsku. Þvert á móti standi kapítalisminn á styrkum siðferðislegum grunni og sé í fullu samræmi við boðskap Krists og kenningar kristinnar kirkju.
Bókin hefur fengið frábærar viðtökur gagnrýnenda í Bandaríkjunum – og er óhætt að segja að hún sé skyldulesning allra sem láta sig þjóðfélagsmál varða.
Jay W. Richards er doktor í heimspeki og trúarbragðafræðum frá Princeton-háskóla. Hann hefur m.a. skrifað bókina The Untamed God.
Elín Guðmundsdóttir þýddi.
Kilja – 350 bls.
Útgáfuár: 2011