Ný jörð <br><small><i> Eckhart Tolle</i></small></p>

Ný jörð
Eckhart Tolle

Translation missing: is.products.product.regular_price
4.299 kr
Translation missing: is.products.product.sale_price
4.299 kr
VSK er innifalinn. Sendingarkostnaður er innifalinn í verði.

AÐ VAKNA TIL VITUNDAR UM TILGANG LÍFS ÞÍNS

Er maðurinn sjálfum sér verstur? Lætur allt undan í óstöðvandi græðgi mannsins, í ótta hans og fávísi, sem brýst greinilega fram í innbyrðis átökum manna, í hryðjuverkum og stríði, í ofbeldi og kúgun, sem einnig setur mark sitt á persónuleg samskipti og sambönd?

Í þessari bók Eckharts Tolle er að finna vegvísi ekki aðeins að betri lifnaðarháttum heldur að betri heimi.

Sigurður Skúlason íslenskaði.

Metsölubækur Eckharts Tolle, Krafturinn í núinu og Ný jörð, eru almennt álitnar tvær áhrifamestu bækur um andleg málefni á okkar tímum.

„Grundvallarrit um andlegt líf. Þessi bók er ein mesta gersemi sem ég hef lesið.“ –Oprah Winfrey

„Önnur hlið á hinu sameiginlega vanhæfi mannshugans er fáheyrt ofbeldið sem maðurinn beitir önnur lífsform og plánetuna sjálfa – eyðing skóga sem framleiða súrefni og annars gróðurs og dýralífs, ill meðferð dýra í verksmiðjubúum, eitrun fljóta, hafs og lofts. Knúinn áfram af græðgi, óvitandi um tengsl sín við heildina, æðir maðurinn stöðugt áfram og verði ekki breyting þar á hlýtur það að enda með tortímingu hans sjálfs.“ – Eckhart Tolle

Ný jörð er bók sem á brýnt erindi nú sem endranær, en kannski brýnna nú en nokkru sinni fyrr. Og þessi bók fjallar um þig. Hún mun vekja þig og breyta vitundarástandi þínu, annars er hún gagnslaus.  Bók sem tekur á grundvallarspurningum lífsins: Hver er ég? Hver er tilgangur minn í þessum líkama hér á jörð?“ – Sigurður Skúlason

Kilja – 300 bls.

Útgáfuár: 2023