Lofgjörð til Katalóníu <br><small><i> George Orwell</i></small></p>

Lofgjörð til Katalóníu
George Orwell

Translation missing: is.products.product.regular_price
4.499 kr
Translation missing: is.products.product.sale_price
4.499 kr
VSK er innifalinn. Sendingarkostnaður er innifalinn í verði.

Í þessari bók lýsir breski rithöfundurinn George Orwell reynslu sinni úr borgarastyrjöldinni á Spáni þar sem hann barðist sem sjálfboðaliði með sveitum sósíalista á árunum 1936–1937. Sú reynsla mótaði stjórnmálaskoðanir hans það sem eftir var ævinnar og gerði hann að hörðum andstæðingi alræðis.   

Í bókinni kemur glöggt fram ástríðufull mannúðarhyggja Orwells sem einkennir öll hans verk.  Hann lýsir með beisku innsæi hinum björtu vonum og kaldrifjuðu svikum sem einkenndu þessa óreiðukennda tíma á Spáni; byltingarandanum í Barcelóna, hugrekki spænskrar alþýðu, hryllingnum og glundroðanum á vígstöðvunum og grimmdarlegum launráðum manna sem töldust vera bandamenn hans.

Guðmundur J. Guðmundsson íslenskaði og ritar eftirmála þar sem hann setur frásögn Orwells í sögulegt samhengi.

George Orwell (1903–1950) var einn snjallasti rithöfundur Englendinga á 20. öld. Hann var afkastamikill ritgerðahöfundur og skrifaði meðal annars tvær af frægustu skáldsögum aldarinnar, Dýrabæ og Nítján hundruð áttatíu og fjögur, sem báðar hafa komið út í íslenskri þýðingu.

Kilja – 279 bls.

Útgáfuár: 2024