Jökulsævintýrið <br><small><i>Jakob F. Ásgeirsson</i></small></p>

Jökulsævintýrið
Jakob F. Ásgeirsson

Translation missing: is.products.product.regular_price
6.999 kr
Translation missing: is.products.product.sale_price
6.999 kr
VSK er innifalinn. Sendingarkostnaður er innifalinn í verði.

Sagan af því er Loftleiðamenn björguðu bandarískri skíðaflugvél af Vatnajökli árið 1951

Þegar erfiðleikar steðjuðu að flugfélaginu Loftleiðir um miðja 20. öld tóku Loftleiðamenn sig til og grófu upp úr Vatnajökli DC-3 flugvél sem Bandaríkjaher hafði orðið að skilja eftir ári fyrr við björgun áhafnarinnar á Geysi af Bárðarbungu. 

Vélin reyndist lítt skemmd og flugu Loftleiðamenn henni til Reykjavíkur við mikil fagnaðarlæti bæjarbúa. Síðan seldu þeir flugvélina úr landi og kom þar góður skildingur í kassann á erfiðum tímum.

Í þessari bók er saga björgunarleiðangursins rakin í máli og myndum með dagbókarfærslum Alfreðs Elíassonar og einstökum ljósmyndum Árna Kjartanssonar og fleiri.

Leiðangurinn stóð í heilan mánuð og var hin mesta þrekraun. Loftleiðamenn höfðu flogið yfir jökulinn meðan vélin var enn sýnileg og þannig tekist að staðsetja hana nokkurn veginn. Þeir þurftu hins vegar að grafa sjö metra niður á Jökul en svo kölluðu þeir vélina.

Jökulsævintýrið þykir einstakt afrek í flugsögunni og hefur þess verið víða getið af flugáhugamönnum úti um lönd.

Innbundin – 148 bls.

Útgáfuár: 2023