Gömlu ævintýrin löguð að rétthugsun samtímans <br><small><i> James Finn Garner</i></small></p>

Gömlu ævintýrin löguð að rétthugsun samtímans
James Finn Garner

Translation missing: is.products.product.regular_price
4.499 kr
Translation missing: is.products.product.sale_price
4.499 kr
VSK er innifalinn. Sendingarkostnaður er innifalinn í verði.

Í þessari frægu metsölubók hefur James Finn Garner endurskrifað sígildu ævintýrin fyrir meira upplýsta tíma – allt frá sambandi Mjallhvítar við sjö hávaxtarhamlaða karla og Rauðhettu, ömmu hennar og klæðskiptahneigða úlfsins, sem stofnuðu til annars konar heimilishalds sem byggðist á gagnkvæmri virðingu og samvinnu, til keisarans sem var ekki allsber heldur hlynntur klæðnektarvalfrelsi.

Ragnar Hauksson íslenskaði.

„Það viturlegasta og fyndnasta sem skrifað hefur verið um rétthugsun samtímans … Ómissandi lesning fyrir fullorðna á öllum aldri.“ – Observer

„Menningarviðkvæmar sögur þar sem öllum fordómum hefur verið útrýmt.“ – Daily Mail

„Eitt af þessum verkum sem tengir höfund samstundis við hjarta lesandans …

Dásamlegt.“ – The Times

„Martraðarkennd skemmtun ... nútímasögur um okkar líf og tíma.“ – Financial Times

„Gömlu ævintýrin vandlega endurskrifuð til að tjá enga skoðun.“ – Sunday Times

Innbundin – 149 bls.

Útgáfuár: 2023