Fyrsti bjórsopinn <br><small><i> Philippe Delerm</i></small></p>

Fyrsti bjórsopinn
Philippe Delerm

4.499 kr
4.499 kr
VSK er innifalinn. Heimsendingarkostnaður er innifalinn í verði ef verslað er fyrir 5.000,- eða meira. Annars er það 1.500,-

Og fleiri smálegar lífsnautnir

Þessi litla perla franska rithöfundarins Philippes Delerm sló hressilega í gegn þegar hún kom út í Frakklandi og hefur nú selst í meira en milljón eintökum þar í landi. Í stuttum köflum beinir höfundur sjónum að upplifunum hversdagsins sem veita gleði og lífsfyllingu, hvort sem það er fyrsti bjórsopinn, ilmur af eplum eða lestur á bók eftir Agöthu Christie. Hrífandi frásögnin einkennist af barnslegri forvitni og fyndnum athugasemdum – og minnir okkur á að njóta og meta allt hið smáa sem auðgar lífið.

Bókin hlaut frönsku Grandgousier-bókmenntaverðlaunin en þau eru veitt fyrir bækur sem lofa glaðlyndi og lífsins lystisemdir.

Friðrik Rafnsson íslenskaði.

Franski verðlaunahöfundurinn Philippe Delerm (f. 1950) hefur sent frá sér yfir 30 bækur – skáldsögur, smásögur og ritgerðasöfn.

Kilja – 124 bls. 

Útgáfuár: 2025