Þeir vöktu yfir ljósinu<br><small><i>Erla Dóris Halldórsdóttir</i></small></p>

Þeir vöktu yfir ljósinu
Erla Dóris Halldórsdóttir

Translation missing: is.products.product.regular_price
4.299 kr
Translation missing: is.products.product.sale_price
4.299 kr
VSK er innifalinn. Sendingarkostnaður er innifalinn í verði.

Saga karla í ljósmóðurstörfum

Ljósmæðrastéttin er rótgrónasta kvennastétt landsins. Enginn karl­maður sinnir ljósmóðurstörfum hér á landi og er Ísland eitt fárra landa á Vesturlöndum þar sem engin karlkyns ljósmóðir fyrirfinnst. En fyrr á öldum var talsvert algengt að karlar sinntu fæðingarhjálp hér á landi.

Í þessari bók er saga þeirra dregin fram í dagsljósið. Fjallað er um sögu ljósmóðurstarfsins en sjónum sérstaklega beint að körlunum, bæði hér á landi og í öðrum löndum. Sagt er frá fjölmörgum bændum, hreppstjórum og prestum sem vöktu yfir ljósinu og hjálpuðu konum að fæða börn sín.

Höfundurinn, Erla Dóris Halldórsdóttir, er doktor í sagnfræði frá Háskóla Íslands en einnig hjúkrunarfræðingur að mennt. Bókin er að hluta byggð á doktorsritgerð hennar.

Kilja – 254 bls.

Útgáfuár: 2019