Hjónin Ingibjörg Sigurðardóttir og Gissur Gunnarsson voru ábúendur á bænum Byggðarhorni í Flóa í 36 ár, frá 1899 til 1935. Gissur fæddist í Byggðarhorni en afi hans og amma höfðu tekið þar við búsforráðum árið 1837. Gissur og Ingibjörg eignuðust 16 börn sem öll komust til manns. Teljast afkomendur þeirra nú vel á sjötta hundrað. Tveir þeirra, bræðurnir Theódór og Hjalti Lúðvíkssynir, hafa tekið saman niðjatal langafa síns og langömmu og safnað upplýsingum um afkomendurna sem birtast í þessari bók.
Höfundar niðjatalsins, Theódór Lúðvíksson, endurskoðandi og fyrrverandi starfsmaður Sameinuðu þjóðanna, og Hjalti Lúðvíksson landbúnaðarvélaverkfræðingur.
Kilja – 236 bls.
Útgáfuár: 2026