Á vígvelli siðmenningar <br><small><i>Matthías Johannessen</i></small></p>

Á vígvelli siðmenningar
Matthías Johannessen

Translation missing: is.products.product.regular_price
1.999 kr
Translation missing: is.products.product.sale_price
1.999 kr
VSK er innifalinn. Sendingarkostnaður er innifalinn í verði.

Baugsmálið svokallaða vakti upp einhverjar áköfustu illdeilur Íslandssögunnar. Ófyrirleitinn auðhringur beitti fjölmiðlaveldi sínu til að takast á við stjórnmálavaldið í landinu og fylkja almenningi á bak við sig. Þeir, sem taldir voru standa í vegi fyrir auðhringnum, voru miskunnarlaust rægðir. Skipulega var grafið undan trausti á stofn­unum þjóð­félagsins, ekki síst lögreglu og eftirlits­aðilum. Fé var borið á stjórn­málamenn og félagasamtök. Jafnvel dómstólar lands­ins voru ekki undan­skildir, sbr. dóm­ana í Baugsmálinu sem endurspegluðu fjöl­miðlaáróður auð­hrings­ins og áhrif hans á almenningsálitið. Öllu hafði verið snúið á haus – rétt varð rangt. Sam­hliða var stiginn hrunadans í fjármálalíf­inu þar sem fyrri viðmið viku fyrir taumlausri dýrkun á Mamm­oni. Lygi og falsvonir réðu ríkjum í íslensku samfélagi.

Mitt í þessari orrahríð tók skáldið og gamli Morgunblaðsritstjórinn, Matthías Johannessen, til vopna í þágu sið­legs lífs á Íslandi. Þessi bók er ávöxtur þeirrar baráttu. Matthías vildi vekja þjóð sína af þyrnirósarsvefni, ryðja lyginni og falsvonunum burt og hefja til vegs á ný það sem raun­veru­lega skiptir máli fyrir tilvist íslenskrar þjóðar – bók­mennta­­arfinn, tunguna og samhengi sögunnar.

Mögnuð lesning um dapurlegt upplausnarskeið í Íslandssögunni.

Kilja – 256 bls.

Útgáfuár: 2010