Moldrok<br><small><i> Mons Kallentoft</i></small></p>

Moldrok
Mons Kallentoft

Translation missing: is.products.product.regular_price
3.499 kr
Translation missing: is.products.product.sale_price
3.499 kr
VSK er innifalinn. Sendingarkostnaður er innifalinn í verði.

Snemma morguns í maímánuði finnst nakið lík af ungum manni sem hefur verið myrtur. Sama dag hverfur sextán ára stúlka. Hún virðist hafa verið numin á brott. Ýmislegt bendir til þess að málin tvö séu tengd. Smám saman verður lögregluforingjanum Malin Fors ljóst að sökudólgurinn er í sérkennilegum leik við lögregluna. En erfitt er að henda reiður á hvað vakir fyrir honum eða henni. Malin Fors og félagar eru í kapphlaupi við tímann. Hugsanlegt er að unga stúlkan sé enn á lífi.

Mons Kallentoft er einn af þekktustu rithöfundum Svíþjóðar. Ritröð hans um Malin Fors, lögregluforingja í Linköping, hefur notið mikilla vinsælda víða um lönd. Moldrok er áttunda bókin um Malin Fors en hinar sjö — Sumardauðinn, Haustfórn,  Vetrarblóð, Vorlík, Fimmta árstíðin, Englar vatnsins og Sálir vindsins — hafa selst í milljónum eintaka og verið þýddar á nær 30 tungumál.

Jón Þ. Þór þýddi.

„Gríðarlega spennandi.“ – Corren

„Mons Kallentoft er mest spennandi sænski glæpasagnahöfundurinn um þessar mundir.“ – Östran

„Kallentoft skrifar svo vel að margir af kollegum hans líta út eins og viðvaningar.“ – Aftonbladet

„Eins og alltaf eru bækur Kallentofts bæði leyndardómsfullar og spennandi. Upplögð bók til að skríða með upp í sófann.“ – Tranås-Posten

Kilja – 352 bls.

Útgáfuár: 2019