Litlar konur<br><small><I>Louisa May Alcott</i></small></p>

Litlar konur
Louisa May Alcott

Translation missing: is.products.product.regular_price
2.999 kr
Translation missing: is.products.product.sale_price
2.999 kr
VSK er innifalinn. Sendingarkostnaður er innifalinn í verði.

Litlar konur (Little Women) eftir bandaríska rithöfundinn Louisu May Alcott er ein vinsælasta skáldsaga síðari tíma.

Bókin segir uppvaxtarsögu fjögurra systra — hinnar fögru og dygðugu Möggu, strákastelpunnar Jóu, hinnar blíðlyndu Betu og ofdekruðu Önnu litlu. Tilvera þeirra fer úr skorðum þegar fjárhagur fjölskyldunnar hrynur. Í sama mund er faðir systranna kallaður í herinn, en sagan gerist í skugga bandaríska borgarastríðsins á nítjándu öld. Nokkru síðar fer móðir þeirra að hjúkra föðurnum. Systurnar fjörmiklu þurfa þá að takast á við lífið upp á eigin spýtur.

Einstaklega hugljúf og skemmtileg skáldsaga sem hefur heillað kynslóðir lesenda, eða allt frá því að hún kom fyrst út árið 1868.

Louisa May Alcott (1832–1888) var þekktur feministi á sinni tíð og tók einnig þátt í baráttunni fyrir afnámi þrælahalds. Litlar konur er frægasta bók hennar. Hún byggir að hluta á æsku hennar sjálfrar. Þegar hún var spurð að því af hverju hún hefði aldrei gengið í hjónaband gaf hún þá skýringu að hún hefði orðið ástfangin af fjölmörgum fallegum stúlkum en aldrei haft snefil af áhuga á körlum. Alcott barðist hart fyrir því að konur fengju kosningarétt og var fyrsta konan til að skrá sig sem kjósanda í bænum Concord í Massachusetts.

Páll Skúlason þýddi.

Kilja – 204 bls.

Útgáfuár: 2020