Heimskautsbaugur <br><small><i> Liza Marklund </i></small></p>

Heimskautsbaugur
Liza Marklund

Translation missing: is.products.product.regular_price
3.499 kr
Translation missing: is.products.product.sale_price
3.499 kr
VSK er innifalinn. Sendingarkostnaður er innifalinn í verði.

„Drottning skandinavískra glæpasagna.“ – Henning Mankell

Fimm unglingsstúlkur í smábænum Stenträsk nyrst í Svíþjóð ákveða að mynda leshring sem þær kalla Heimskautsbaug. Þær koma saman einu sinni í mánuði til að skiptast á skoðunum um bækurnar sem þær lesa. Ein þeirra hverfur sporlaust sumarið 1980. Fjörutíu árum síðar finnst lík hennar. Hún hafði verið myrt.

Um jólin 2020 hittast konurnar í fyrsta sinn eftir að vinkona þeirra hvarf. Þá kemur í ljós að það var eitthvað í samskiptum þeirra sem leiddi til morðsins á sínum tíma. En hvað var það og hverjar eru afleiðingarnar?

Heimskautsbaugurinn er fyrsta bókin í mögnuðum þríleik sem gerist á æskuslóðum Lizu Marklund í Norrbotten, ægifögru landslagi um tuttugu kílómetra suður af heimskautsbaugnum. Bókin kemur út á sama tíma í Svíþjóð og á Íslandi.

Bækur verðlaunahöfundarins Lizu Marklund hafa selst í yfir 23 milljónum eintaka og meðal annars komist í efsta sæti metsölulista New York Times.

„Liza Marklund hefur algera sérstöðu sem höfundur. Sögur hennar eru ekki aðeins bráðsnjallar, heldur vel skrifaðar og endurspegla róttækar skoðanir hennar á þjóðfélagsmálum.“ – Henning Mankell

Kilja – 334 bls.

Útgáfuár: 2021