Vítisfnykur <br><small><i>Mons Kallentoft</i></small></p>

Vítisfnykur
Mons Kallentoft

Translation missing: is.products.product.regular_price
3.499 kr
Translation missing: is.products.product.sale_price
3.499 kr
VSK er innifalinn. Sendingarkostnaður er innifalinn í verði.

Malin Fors hefur yfirgefið Linköping og sest að í Bangkok í Taílandi þar sem hún gegnir tímabundnu starfi á vegum sænsku lögreglunnar. Drykkja hennar hafði keyrt um þverbak vegna óreiðu í einkalífinu og máls sem henni tókst ekki að leysa.

Einsemdin þjakar hana og freistingar eru á hverju götuhorni. En eins og jafnan finnur hún sálarró í vinnunni. Sænsk kona er myrt með hrottafengnum hætti í Bangkok. Hver er hún? Hvert er samband hennar við Taílendinginn sem virðist vera næsta fórnarlamb? Tengjast morðin ef til vill atburðum í fortíðinni?

Mons Kallentoft er einn af þekktustu rithöfundum Svíþjóðar. Ritröð hans um Malin Fors, lögregluforingja í Linköping, hefur notið mikilla vinsælda víða um lönd. Brennuvargar er níunda bókin um Malin Fors en hinar átta — Sumardauðinn, Haustfórn, Vetrarblóð, Vorlík, Fimmta árstíðin, Englar vatnsins, Sálir vindsins og Moldrok — hafa selst í milljónum eintaka.

Jón Þ. Þór þýddi.

„Kallentoft hefur sjaldan skrifað af jafn mikilli innlifun. Afar áhrifarík bók, mögnuð spenna og lifandi persónusköpun.“  – Upsala Nya Tidning

Æsispennandi og djúphugsuð saga sem vekur upp margar forvitnilegar spurningar.“ – DAST Magazine

„Enginn tekur Mons Kallentoft fram í því að byggja upp spennu ... Og ef maður hefur komið til Bangkok upplifir maður á ný svitann, lyktina og hávaðann. Dásamlegt!“ – Skareborgs Allehanda

„Svona eiga glæpasögur að vera!“ – Ölandsbladet

Kilja – 422 bls.

Útgáfuár: 2021