Leyndardómur bláu lestarinnar <br><small><I>Agatha Christie</i></small></p>

Leyndardómur bláu lestarinnar
Agatha Christie

4.799 kr
4.799 kr
VSK er innifalinn. Heimsendingarkostnaður er innifalinn í verði ef verslað er fyrir 5.000,- eða meira. Annars er það 1.500,-

Belgíski rannsóknarlögreglumaðurinn Hercule Poirot er á leið til frönsku Rívíerunnar. Hann hugsar sér gott til glóðarinnar að hvílast og njóta lífsins um borð í lúxuslestinni bláu, Le Train Bleu

Í lestinni hittir hann fyrir dóttur þekkts bandarísks auðmanns, Ruth Kettering. Hún er á leið til fyrrverandi elskhuga síns. Morguninn eftir finnst hún myrt og dýrmætir skartgripir hennar eru horfnir.

Sögur fara á kreik um að ókunnugur maður hafi verið á sveimi í lestinni. Það er allt og sumt sem Poirot hefur að byggja á.

Smám saman kemur í ljós ótrúlegur vefur blekkinga og leyndarmála sem Poirot þarf að greiða úr til að afhjúpa morðingjann.

„Sérstaklega áhugaverð spennusaga í klassískum anda.“ New York Herald Tribune

„Agatha Christie er ódauðleg.“ Kolbrún Bergþórsdóttir, Kiljunni

Agatha Christie (1890–1976) er vinsælasti skáldsagnahöfundur allra tíma. Aðeins Biblían og verk Shakespeares hafa selst í fleiri eintökum á heimsvísu en bækur Agöthu Christie. Meira en milljarður eintaka hefur selst af bókum hennar á ensku og annar milljarður til í þýðingum á um eitt hundrað tungumál.

Kilja – 296 bls.

Útgáfuár: 2026