Kyrrlátan morgun í Stokkhólmi er yfirlögregluþjóninninn Ewert Grens kallaður út í líkhús þar sem líkum hefur skyndilega fjölgað um eitt í læstri geymslu. Hvernig mátti það vera?
Piet Hoffmann, sem hefur á víxl verið flugumaður sænsku lögreglunnar í hrottafengnum glæpahringjum eða á flótta undan réttvísinni, tekst á við stórt verkefni í framandi heimsálfu þar sem mannslíf eru einskis virt.
Heima í Svíþjóð bíður fjölskylda Piets í ofvæni eftir að heyra um afdrif hans. Öryggi fjölskyldunnar í Svíþjóð reynist ótryggt og brátt standa synirnir tveir frammi fyrir því að þurfa að berjast fyrir lífi sínu.
Þrír tímar skilja á milli lífs og dauða!
Sænskur háspennutryllir af bestu gerð eftir höfund Þriggja sekúndna og Þriggja mínútna.
Elín Guðmundsdóttir þýddi.
„Æsispennandi söguþráður— glæpasaga þar sem ógnin fer í hæstu hæðir.“ – Dagens Nyheter
„Sænskur kirmmi eins og þeir gerast bestir.“ – Literatursiden
„Einstök glæpasaga, frábærlega vel skrifuð og trúverðug, sem á beint erindi í samtímann. Persónusköpun og staðháttalýsingar eru framúrskarandi.“ – BT
„Ewert Grens-serían verður betri með hverri bók og Þrír tímar er sú allra besta hingað til.“ – New York Journal of Books
Elín Guðmundsdóttir þýddi.
Kilja – 460 bls.